Go to content Go to navigation Go to search

Góða helgi!

Friday, 12. June 2009

Síðust helgi hélt ég grunnámskeið í heilun og gekk það mjög vel og var virkilega skemmtilegt. Ég vil aftur þakka ykkur öllum sem voru með mér á námskeiðinu fyrir skemmtilega helgi :)

Ég er búin að hafa mjög mikið að gera undanfarnar 3 vikur, bæði á stofunni og svo að halda námskeið og vera aðstoðarkennari á höfuðbeina og spjaldhr. námskeiði og finn ég að það hefur tekið aðeins toll af mér. Hvað þýðir það – nú það þýðir að þessi helgi verður tekin í afslöppun og notalegheit þannig að ég komi aftur sterk inn eftir helgi!  ;)

Ég er alltaf að bæta inn á síðuna annars lagið en gleymi stundum að láta vita hér þannig að oft er sniðugt að skoða aðeins og sjá hvort þú rekist ekki á eitthvað nýtt. Núna var ég einmitt að bæta aðeins við á bókalistann þeas. bækur sem ég mæli með.

Ég mun halda annað grunn námskeið í heilun í haust og ég er byrjuð að skrá á það.

Að lokum – ég er búin að stofna grúppu á Facebook, endilega skráið ykkur þar.

Þar til næst! :)