Go to content Go to navigation Go to search

Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð – Frábær helgi!

Monday, 20. August 2007

Alla helgina var ég að vinna sem þerapisti á “mini – intensive” meðferðarprógrammi. Það var yndislegt – mikil vinna átti sér stað hjá skjólstæðingunum og gekk helgin rosalega vel. Þarna var fólk á öllum aldri – hreint frábært hópur! Fyrir þá sem sem lesa þetta og voru í prógramminu vil ég bara þakka ykkur aftur kærlega fyrir traustið sem þið sýnduð okkur – það var virkilega ánægjulegt að kynnast ykkur og ég vona að þið hafið það sem allra allra best :)

Svona 2 daga prógrömm á víst að halda nokkuð reglulega þannig að ef að þú hefur áhuga á að koma á svona prógramm hafðu þá samband við mig.

Einnig mun vera 5 daga prógram hér á Íslandi í mars og svo aftur í október 2008 – bæði haldin í Bláalóninu. Þau prógrömm eru samvinna Upledger á Íslandi og Integrative Intentions og er sama prógram og ég fór út til USA til að taka þátt í. Á þessi prógrömm koma bæði íslenskir og erlendi skjólstæðingar og meðferðaraðilar. Erlendu meðferðaraðilarnir eru stór hópur einstaklega hæfileikaríkra einstaklinga með mikla reynslu sem er virkilega ánægjulegt að vinna með og umgangast. Takmarkað af plássum er á þessi prógrömm – ef þú hefur áhuga endilega hafðu samband við mig.

Þartil næst! :)

Tónkvíslar / Tuning forks og meðferð

Sunday, 19. August 2007

Ég hef alltaf haft mikla trú á heilunar eiginleikum hjóða á líkamann. Hljóð geta annaðhvort haft mjög heilandi áhrif á líkamann eða niðurbrjótandi á vissan hátt. Hægt er að nota t.d. vissa hemi-sync tækni til þess að samstilla heilahvelin og byggist sú tækni á ákveðnum hljóðum en í því tók ég námskeið um daginn.

Einnig er hægt að nota sérstaka tónkvísla til þess að nota í heilun og er ég nú loksins af fá slíka kvísla til að nota á stofunni minni. 2 grunngerðir á kvíslum eru til – þeir sem eru með lóð og þeir sem hafa ekki lóð. Þeir sem eru með lóðum hafa dýpri tón og hægt er að leggja á líkamann til að hafa beint áhrif á líkamsstarfsemi – þeir sem ekki hafa lóð eru með hærri tón og hljóma styttra og hafa meiri áhrifi á “subtile” body eða orkulíkamann.

Mun ég vinna með þessa kvísla á stofunni minn og hafa til sölu.

Næstu færslur »