Go to content Go to navigation Go to search

The Brain Speaks

Thursday, 18. January 2007

Ég er alltaf að bæta við þekkingu mína á sviði óhefðbundna meðferða til þess að hafa fleiri meðferðarúrræði og þar með möguleika á að hjálpað fleirum. (Fyrir utan það hvað mér finnst þetta ROSALEGA gaman :) )
Í nóvember fór ég á mjög áhugavert og skemmtilegt námskeið hjá Upledger stofnuninni á Íslandi og hér kemur smá lýsing á því.

Innihaldslýsing: Á TBS námskeiðinu er unnið með möguleikana á að eiga samskipti við mannsheilann – hin mismunandi lög heilans skoðuð, heilahlutar og alveg niður í einstaka taugafrumur. Verið er að reyna á og farið djúpt í að skoða möguleika á að tengjast samvitund líffæris eða vefs með því að nota samtalstækni og sjónsköpun. Á meðal þess sem námskeiðið samanstendur af er fyrirlestrar, sýnidæmi og meðferðarvinnu þáttakenda, einnig er stór þáttur námskeiðsins falinn í umræðum þar sem reynsla og upplifanir námskeiðsþáttakenda koma fram, sem felst í því að þeir segja frá reynslu sinni í því að vinna með og hafa samskipti við persónuleika heila/heilahluta annarra námskeiðsþáttakenda.
Aðalatriði námskeiðsins:

  • Fá nákvæma kennslu og fræðslu í taugalíffærafræði, lífeðlis og lífefna ferlum í starfsemi taugakerfisins.
  • Fá kennslu í samtalstækni og vinnu með táknmyndir sem upp koma í meðferðarvinnu með ákveðin svæði heila og mænu og hluta þeirra sem ekki starfa sem skyldi.
  • Reyna, með aðstoð samtalstækninnar, að afla upplýsinga frá hlutum
    miðtaugakerfisins og hafa áhrif á starf þeirra, þannig hafa áhrif á heilbrigði og heilsufar einstaklingsins, streitu, gömul meiðsl eða andlegt ástand sem getur á allan hátt

Tekið af síðu Upledger

Í febrúar tek ég svo Advanced í höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðinni og hlakka ég mjög til þess, er bún að vera að bíða eftir að því að það sé haldið í langan tíma!

Umsagnir

Thursday, 18. January 2007

“Hún Tinna er ekki ein af þeim sem fer hina hefðbundnu leið, hún fer sína eigin leiðir sem er svo frábært við hana.
Hún er svo uppfull af áhuga á því sem hún er að gera, enda hefur hún ómælda orku og nærvera hennar er svo róandi að það er töfrum líkast.
Eftir fyrsta tímann fannst mér sem ég svifi um á bleiku skýi, einhvernveginn fannst mér eins og hún hefði náð að “stilla mig af” og koma á betra
jafnvægi á líkama og sál.
Ég slakaði svo vel á hjá henni að ég sofnaði á bekknum. Það er ekki oft sem maður nær algerri slökun, en sú tilfinning er yndisleg.”

Fleiri umsagnir